Húsasmiðjan innkallar barnarólur

Ljósmynd/Aðsend

Húsasmiðjan hefur innkallað barnarólur. Rólurnar voru seldar í þremur litum bláum, rauðum og gulum. Í leiðbeiningum frá framleiðanda sem fylgja með rólunum kom fram að varan var fyrir börn eldri en 3 ára og undir 40 kg. Kom síðar í ljós að þessar merkingar voru ekki réttar, einnig að það vantaði viðvörunarmerkingarnar.

Barnarólan er ætluð börnum yngri en þriggja ára og undir 40 kg. Vörunúmer rólunnar er 3901167, að því er segir á vef Neytendastofu.

Í tilkynningunni kemur fram að Húsasmiðjan hefur öryggi viðskiptavina ávallt í fyrirrúmi og því hefur verið tekin ákvörðun í samvinnu við Neytendastofu að hætta allri sölu á vörunni og innkalla hana.

Húsasmiðjan hvetur alla viðskiptavini sem keypt hafa þessa barnarólu um að skila henni í næstu Húsasmiðjuverslun og fá hana endurgreidda. Húsasmiðjan biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda, að því er fram kemur á vef Neytendastofu.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert