Ríkissjóður lánar Íslandspósti 500 milljónir til að styrkja lausafjárstöðu

mbl.is/Eggert

Ríkissjóður hefur veitt Íslandspósti 500 milljóna króna lán til allt að 12 mánaða til að styrkja lausafjárstöðu félagsins, með fyrirvara um heimild í fjáraukalögum. 

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Íslandspóstur er að fullu í eigu ríkisins og hefur félagið rekstrarleyfi frá Póst- og fjarskiptastofnun sem kveður á um að það skuli gegna skyldum ríkisins skv. lögum um póstþjónustu. Í því felst m.a. að félagið fer með einkarétt ríkisins til að sinna póstþjónustu, þ.e. póstsendingar bréfa allt að 50 g, og sinnir alþjónustu fyrir hönd ríkisins til að tryggja öllum landsmönnum aðgang að póstþjónustu með skilgreindum gæðum og á viðráðanlegu verði. Nær alþjónustuskyldan til sendinga allt að 20 kg. Með lánveitingunni tryggir ríkið tímabundið möguleika félagsins til að standa undir þessum skyldum, að því er segir í tilkynningunni.

Bréfasendingum farið ört fækkandi

„Undanfarinn áratug hefur bréfasendingum farið ört fækkandi um allan heim. Á sama tíma hefur netverslun rutt sér til rúms og pakkasendingum fjölgað. Tekjur af bréfasendingum vegna alþjónustu hafa dregist saman á sama tíma og dreifikerfið hefur stækkað með fjölgun íbúða og fyrirtækja, en auknar tekjur af pakkasendingum hafa ekki dugað til að vega upp á móti samdrætti í bréfasendingum. Þessi þróun hefur haft neikvæð áhrif á efnahag og lausafjárstöðu félagsins. Þótt eiginfjárstaða sé enn sterk þarf að styrkja rekstrargrundvöll félagsins til framtíðar eigi það að geta gegnt hlutverki sínu. Mörg nágrannaríki hafa glímt við sambærilega þróun og eru nýleg dæmi í Evrópu um að póstfyrirtæki í ríkiseigu hafi fengið hlutafjáraukningu, lánafyrirgreiðslu eða beina rekstrarstyrki til að bregðast við áhrifum þessarar þróunar,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir, að Íslandspóstur þurfi á fjármagni að halda til að viðhalda rekstrarfjármunum sem og til að styrkja lausafjárstöðu félagsins. Þrátt fyrir aukna lántöku undanfarin ár sé þörf á meira lausafé, allt að 500 milljónir kr., til að standa undir skuldbindingum næstu mánuðina og fyrirsjáanlegum taprekstri á yfirstandandi ári, m.a. vegna mikillar fækkunar bréfa, og hefur félagið leitað til ríkisins um fyrirgreiðslu vegna þess.

„Ljóst er að móta þarf framtíðarstefnu og áætlun um hvernig haga beri póstþjónustu þannig að hún verði sjálfbær. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið sem ráðuneyti póstmála vinnur að endurskoðun gildandi lagaramma til að tryggja góða póstþjónustu um allt land.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert