Vann 209 milljónir króna

AFP

Heppinn lottóspilari er rúmum 208 milljónum króna ríkari eftir að dregið var í EuroJackpot-lottóinu í kvöld. Hlaut hann annan vinning lottósins en fyrsti vinningurinn, sem hljóðaði upp á rúmlega 2,4 milljarða króna, gekk ekki út. Vinningsmiðinn var keyptur í Þýskalandi. 

Sex skipta með sér þriðja vinningnum og fær hver í sinn hlut rúmar 12 milljónir króna. Fjórir vinningsmiðanna voru keyptir í Þýskalandi, einn í Danmörku og einn í Noregi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert