Vinna að heildstæðum úrbótum varðandi kynferðislegt ofbeldi

Ljósmynd/Thinkstock

Verkáætlun og yfirlit yfir stöðu verkefna stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi var kynnt í ríkisstjórn í morgun. 

Á meðal verkefna stýrihópsins er að fylgja eftir framkvæmd aðgerðaáætlunar um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins. Í því sambandi hefur dómsmálaráðuneytið þegar veitt fjármagn til níu lögreglustjóraembætta til að fjölga stöðugildum og til stendur að leggja fjármagn í kaup á tækni- og upplýsingabúnaði annars vegar og til að bæta menntun og endurmenntun lögreglumanna/ákærenda hins vegar. 

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Fram kemur að stýrihópurinn muni jafnframt fá til liðs við sig tvo utanaðkomandi sérfræðinga sem vera munu hópnum til ráðgjafar í tengslum við endurskoðun á réttarstöðu brotaþola annars vegar og hins vegar í tengslum við stefnumótun um stafrænt kynferðisofbeldi. Þá hyggst hópurinn leggja til skipan sérstakrar nefndar sem vinna mun með stýrihópnum að því að móta nýja stefnu í forvarnar- og fræðslumálum að því er varðar kynferðislegt ofbeldi og áreitni. 

Meðal verkefna hópsins er að gera tillögur um viðbrögð við #metoo-byltingunni annars vegar innan Stjórnarráðsins og hins vegar gagnvart samfélaginu almennt. Stýrihópurinn mun standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um #metoo á næsta ári í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Undirbúningur ráðstefnunnar er hafinn og verður hún haldin í september 2019. Hópurinn hefur einnig farið ítarlega yfir viðbrögð ráðuneyta við #metoo- byltingunni og yfirfarið verkferla í tengslum við kynferðislega áreitni og einelti. Gera má ráð fyrir að hópurinn leggi fram frekari tillögur um úrbætur síðar á þessu ári, að því er segir í tilkynningunni.

Loks var hópnum gert að beita sér fyrir fullgildingu Samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi (Istanbúl-samningsins). Samningurinn var fullgiltur af Íslands hálfu í apríl sl. og mun hópurinn koma að eftirfylgni með framkvæmd samningsins hér á landi. 

Stýrihópurinn hefur sett sér verkáætlun til þriggja ára og áætlar að ljúka störfum eigi síðar en vorið 2021. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert