230 þúsund kr. sekt fyrir hraðakstur

mbl.is/​Hari

Fimmtán ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum.

Sá sem hraðast ók mældist á 159 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þar var á ferðinni erlendur ferðamaður sem þarf að greiða 230 þúsund krónur í sekt.

Þá voru nokkrir ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefna- eða ölvunarakstur og skráningarnúmer voru fjarlægð af sex bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar, að því er lögreglan greinir frá.

Tveir ökumenn til viðbótar hinum ofangreindu óku á dekkjum sem öll voru negld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert