Eldur kom upp í bíl fyrir utan verkstæði á Smiðjuvegi í Kópavogi um klukkan 21 í kvöld. Slökkvilið var kallað út og sinna fjórir bílar slökkvistarfi. Eldurinn hafði einnig læst sig í hús sem bíllinn stendur við.
Ekki er talið að neinum hafi orðið meint af eldinum, en aðgerðir slökkviliðs standa enn yfir. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu gengur vel að ráða niðurlögum eldsins og mun því ljúka hvað úr hverju.