Ósk Bjarna tekin fyrir á fundi

Fyrir miðju sitja Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, og Brynhildur Davíðsdóttir, …
Fyrir miðju sitja Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, og Brynhildur Davíðsdóttir, formaður stjórnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ósk forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur um að stíga tímabundið til hliðar verður tekin fyrir á fundi stjórnar fyrirtækisins.

Hann verður haldinn eins fljótt og auðið er, að því er segir í tilkynningu frá Brynhildi Davíðsdóttur, formanni stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.

Óskað hefur verið eftir því við innri endurskoðun Reykjavíkurborgar að gerð verði úttekt á vinnustaðamenningu og tilteknum starfsmannamálum.

Tilkynningin í heild sinni:

Ósk forstjóra OR um að stíga tímabundið til hliðar, sem mér barst nú undir kvöld, verður tekin fyrir á fundi stjórnar fyrirtækisins sem haldinn verður eins fljótt og auðið er.

Þegar hefur verið óskað eftir því við Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar að gerð verði úttekt á vinnustaðarmenningu og tilteknum starfsmannamálum. Undirbúningur hennar er þegar hafinn.

Brynhildur Davíðsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert