Tveir í gæsluvarðhald vegna ráns

mbl.is/Eggert

Tveir karlar á þrítugsaldri voru í Héraðsdómi Reykjaness í gærkvöldi úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudagsins 21. september að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á ráni í fyrirtæki í Hafnarfirði á laugardagskvöld.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Annar mannanna var handtekinn rétt við vettvanginn áður en tilkynning um ránið barst lögreglu, en það voru árvökulir lögreglumenn við eftirlitsstörf sem veittu grunsamlegum manni athygli og stöðvuðu för hans.

Sá var með muni meðferðis, m.a. fjármuni, sem hann gat ekki gert grein fyrir.

Hinn maðurinn var svo handsamaður á svipuðum slóðum ekki löngu síðar og voru þeir báðir færðir til yfirheyrslu á lögreglustöð. Starfsmanni í fyrirtækinu þar sem ránið var framið, var illa brugðið en hann slapp ómeiddur.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert