Fóru inn um glugga og stálu áfengi

Ungur maður var handtekinn í fjölbýlishúsi í Breiðholti undir miðnætti og er hann grunaður um líkamsárás og brot á vopnalögum. Maðurinn var vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins, en meiðsli þess sem varð fyrir árásinni eru þó minni háttar að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Þá var tilkynnt um innbrot í hús í Breiðholtinu um sexleytið  í gærkvöldi, en þar höfðu þjófar farið inn um glugga og stolið áfengi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert