Kannabisræktun stöðvuð fyrir austan

mbl/Arnþór

Lögreglan á Austurlandi, í samvinnu við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, stöðvaði kannabisræktun á Breiðdalsvík og í Fellabæ í dag.

Lagt var hald á töluvert magn kannabisefna en nákvæm tala liggur ekki fyrir, að því er segir í tilkynningu.

Auk þessa var lagt hald á tæki sem tengjast framleiðslunni, fjármuni, gróðurlampa og margs konar búnað. Farið var í fleiri húsleitir sem tengjast málunum beint.

Tveir karlar og tvær konur voru handtekin í þágu rannsóknarinnar. Rannsókn málsins er enn í gangi.

Lögreglan minnir á upplýsingasíma lögreglu 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á Facebook-síðum embættanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert