Hluti heræfingar NATO, Trident Juncture, verður haldinn hér á landi um miðjan október sem undanfari aðalæfingarinnar sem hefst 25. október nk. í Noregi. Mun hún standa í tvær vikur og verður hún stærsta varnaræfing bandalagsins frá 2015.
Um fjörutíu þúsund hermenn og borgaralegir sérfræðingar frá meira en þrjátíu aðildarríkjum bandalagsins og samstarfsríkjum taka þátt í æfingunni. Æfðar verða sameiginlegar varnir með vísan til fimmtu greinar Atlantshafssáttmálans.
Æfingin sem fer fram hér á landi verði minni í sniðum. Hún verður haldin 16. október í Sandvík, nærri Höfnum í Reykjanesbæ, og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að 400 manna bandarískt landgöngulið æfir lendingu í Sandvík en um 120 landgönguliðar verða fluttir með þyrlum á öryggissvæðið þar sem æfð verða viðbrögð við árás á stjórnstöð Landhelgisgæslu Íslands.
Sérsveit ríkislögreglustjóra tekur einnig þátt í æfingunni en lögregla og Landhelgisgæsla sjá auk þess um að tryggja öryggi og framfylgja takmörkuðum lokunum á æfingasvæðinu. Ekki er búist við að röskun verði á flugumferð vegna æfingarinnar. Þá verður þess sérstaklega gætt að ekkert umhverfisrask verði.
Samhliða Trident Juncture 2018 á Íslandi efna Landhelgisgæsla Íslands og danski sjóherinn til sérstakrar leitar- og björgunaræfingar en þessar stofnanir hafa haft með sér náið samstarf um árabil.