Leiguverð hækkar en íbúðaverð lækkar

Hækkun leiguverðs umfram hækkun íbúðaverðs hefur aldrei verið meiri á …
Hækkun leiguverðs umfram hækkun íbúðaverðs hefur aldrei verið meiri á milli mánaða frá því mælingar hófust. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Vísitala leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,9% í ágúst, á sama tíma og íbúðaverð lækkaði um 0,1%. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands, en hækkun leiguverðs umfram hækkun íbúðaverðs hefur aldrei verið meiri á milli mánaða frá því að mælingar hófust.

Árshækkun leiguverðs, samkvæmt þinglýstum leigusamningum, mælist nú 8,8% og hækkar frá fyrri mánuði þegar hún mældist 8,3%. Til samanburðar er árshækkun íbúðaverðs í ágúst 4,1% og hefur ekki mælst jafnlág síðan í maí 2011.

Sé litið til sögulegrar þróunar hefur íbúðaverð þó hækkað hraðar en leiguverð, en frá því að mælingar hófust á vísitölu leiguverðs í janúar 2011 hefur leiguverð hækkað um 91% á sama tíma og íbúðaverð hefur hækkað um 99%, að því er segir í tilkynningu Íbúðalánasjóðs. Þetta er þó sjötti mánuðurinn í röð þar sem árshækkun leiguverðs er ofar árshækkun íbúðaverðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert