Rýrt innlegg í kjaraviðræður

Fjárlagafrumvarp 2019.
Fjárlagafrumvarp 2019. mbl.is/​Hari

Miðstjórn ASÍ segir að fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gefi ekki tilefni til mikillar bjartsýni í þeim kjaraviðræðum sem í hönd fari, þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda í samskiptum við verkalýðshreyfinguna um aukna áherslu á félagslegan stöðugleika.

Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar ASÍ. 

Fram kemur, að ASÍ hafi undanfarin ár gagnrýnt stjórnvöld harðlega fyrir að þyngja skattbyrði þeirra tekjulægstu stöðugt á sama tíma og þeir tekjuhærri hafi notið skattalækkana.

Skattbyrði þeirra verst settu þyngd með sjálfvirkum hætti

„Í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár er reyndar skorið á sjálfvirka skattalækkun hinna ríkari, sem er jákvætt, en það er hins vegar dapurlegt að ríkisstjórnin ríghaldi í það fyrirkomulag að þyngja skattbyrði þeirra verst settu með sjálfvirkum hætti. Verkalýðshreyfingin mun ekki horfa aðgerðarlaus á þessa þróun.

Húsnæðis- og vaxtabætur eru áfram skertar þrátt fyrir þá alvarlegu stöðu sem er á húsnæðismarkaði, sem bitnar verst á þeim sem hafa minnst handa á milli. Það er ánægjulegt að barnabætur hækka skv. frumvarpinu, en á sama tíma er aukið við tekjutengingu á millitekjufólk og jaðarskattar þess hækkaðir með auknum skerðingum. Það eru kaldar kveðjur ríkisstjórnarinnar til ungs fólks sem vill stofna fjölskyldu, koma sér þaki yfir höfuðið og eignast börn,“ segir í ályktuninni.

Ríkisstjórnin stilli láglaunafólki í fremstu víglínu

Þá segir, að ASÍ hafi lengi vakið athygli stjórnvalda á því, að þeir sem séu með minnsta menntun séu líklegir til að missa fyrstir vinnuna í fjórðu iðnbyltingunni sem nú banki á dyrnar.

„Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sér þess engan stað að til standi [að] styðja og styrkja lágtekjufólk svo það fái annað tækifæri til náms, þrátt fyrir mikla umræðu í samráðsferli vinnumarkaðarins við stjórnvöld undanfarna mánuði. Þannig er Fræðslusjóður enn einu sinni sveltur. Kinnroðalaust stillir ríkisstjórnin láglaunafólki með litla menntun í fremstu víglínu andspænis þeim breytingum sem eru yfirvofandi á vinnumarkaði. Hún skilar auðu.

Það má finna ýmislegt jákvætt í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, eins og aukið fé til réttinda launafólks í vinnumarkaðssjóðunum og ýmsa þætti heilbrigðiskerfisins o.fl., en þau atriði sem hér er drepið á eru ekki sæmandi samfélagi sem vill láta kenna sig við velferð og jöfnuð,“ segir ASÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert