Tóku fyrstu skóflustungurnar

Fyrstu skóflustungurnar teknar.
Fyrstu skóflustungurnar teknar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fyrstu skóflustungur að nýjum háskólagörðum HR voru teknar í dag við Nauthólsveg, gegnt Reykjavik Natura.

Fyrstu skóflustungurnar tóku Ari K. Jónsson, rektor HR, Eygló M. Björnsdóttir, formaður SFHR, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Að loknum skóflustungunum var boðið til móttöku í Sólinni í HR, þar sem skrifa átti undir samning HR, Jáverks og Landsbankans um fjármögnun framkvæmda. Það eru Kanon arkitektar sem hanna byggingarnar og verktaki er Jáverk. 

Reiknað er með að framkvæmdir hefjist á næstu vikum.

Teikn­ing/​Kanon arki­tekt­ar

Í þessum fyrsta áfanga Háskólagarðanna, sem er tæpir 5.900 fermetrar á 4-5 hæðum, verða 125 íbúðir til útleigu. Baðherbergi og eldunaraðstaða verður í öllum íbúðum en þvottarými og önnur slík aðstaða verður sameiginleg. Áætlað er að hægt verði að taka íbúðirnar í notkun haustið 2020. Heildarkostnaður er áætlaður um 2,6 milljarðar króna, að því er segir í tilkynningu. 

Frá athöfninni í dag.
Frá athöfninni í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Bygging háskólagarðanna hefur verið baráttumál stúdenta í HR í nokkurn tíma og það er gaman að sitja í stjórn stúdentafélagsins þegar það er loksins komið að þessu. Ég er mjög ánægð með þennan frábæra árangur, að fara frá þarfagreiningu nemenda árið 2014 í skóflustungu að Háskólagörðunum í dag,“ sagði Eygló M. Björnsdóttir, formaður Stúdentafélags HR, við skóflustunguna, að því er segir í tilkynningunni. 

mbl.is/Kristinn Magnússon

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, segir að með byggingu Háskólagarða sé stigið stórt skref til að bæta enn frekar þá þjónustu sem HR veitir nemendum sínum. 

„Við vitum hversu erfitt það getur verið fyrir nemendur að finna íbúðarhúsnæði við hæfi og á hagkvæmum kjörum. Með Háskólagörðum HR bjóðum við nemendum glænýtt húsnæði á besta stað og á lægsta leiguverði sem hægt er að bjóða, enda Háskólagarðar ekki reknir í hagnaðarskyni,“ segir hann. 

Teikn­ing/​Kanon arki­tekt­ar

Í nýju deiliskipulagi á lóð HR við Öskjuhlíð er gert ráð fyrir byggingu samtals 390 íbúða. Þetta eru allt frá litlum einstaklingsíbúðum, um 25 m2 að stærð, upp í um 80 fermetra þriggja herbergja íbúðir.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Nokkrar íbúðanna munu einnig nýtast til leigu og tímabundinnar búsetu fyrir starfsfólk HR og starfsfólk fyrirtækja sem starfa innan HR og önnur þekkingarfyrirtæki sem tengjast háskólanum. Auk íbúða verður þjónustukjarni með fjölbreyttri þjónustu syðst á svæðinu, næst HR. Uppbyggingin mun fara fram í fjórum áföngum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert