Bein aðför að smábátaútgerð

Umræddar tillögur er að finna í lokaskýrslu starfshóps sem hafði …
Umræddar tillögur er að finna í lokaskýrslu starfshóps sem hafði það verkefni að gera faglega heildarendurskoðun á regluverki varðandi notkun veiðarfæra, veiðisvæða og verndunarsvæða á Íslandsmiðum. mbl.is/Sigurður Bogi

Formenn þriggja svæðisfélaga Landssambands smábátaeigenda hafa harðlega gagnrýnt tillögur um að banna handfæraveiðar á tilteknum svæðum í Faxaflóa og Breiðafirði. Á heimasíðu LS er haft eftir formönnum félaganna á Akranesi og í Reykjavík að það úr tillögunum sem eigi við um Faxaflóa sé bein aðför að smábátaútgerð frá Akranesi og Reykjavík. Kæmu þær til framkvæmda yrðu það endalok þessa útgerðarforms við Faxaflóa, svo alvarlegt væri málið.

Formenn félaganna í Reykjavík og á Akranesi segja að lokanir veiðisvæða vegna handfæraveiða eigi aldrei rétt á sér. Handfæraveiðar séu ekki og geti ekki orðið vandamál sem vinni gegn uppbyggingu fiskistofna á Íslandsmiðum. Þá hefur Snæfell – félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi, mótmælt tillögunum.

Gætu kollvarpað áætlunum

Umræddar tillögur er að finna í lokaskýrslu starfshóps sem hafði það verkefni að gera faglega heildarendurskoðun á regluverki varðandi notkun veiðarfæra, veiðisvæða og verndunarsvæða á Íslandsmiðum. Fjallað var um skýrsluna í Morgunblaðinu á miðvikudag og kom þar fram að lagt er til að 13 veiðisvæðum á grunnslóð við landið verði lokað.

Á heimasíðu LS eru félagsmenn hvattir til að kynna sér innihald skýrslunnar þar sem einstaka tillögur hópsins, komist þær í framkvæmd, geta hæglega kollvarpað framtíðarplönum smábátaeigenda.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert