Meintur svikahrappur í gæsluvarðhald

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni erlendan karlmann sem grunaður er um að hafa ferðast á flugmiða sem svikinn var út á stolið greiðslukort eða kortaupplýsingar.

Hann var færður á lögreglustöð þar sem tekin var af honum skýrsla og í framhaldinu úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. september.

Málið er í rannsókn að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert