Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um eld við bílskúr í austurhluta borgarinnar.
Þar hafði maður verið að steikja mat og notað til þess eldfiman vökva með þeim afleiðingum að sprenging varð og læsti eldurinn sig við það í föt og hár mannsins.
Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans, en ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan hans, né hvort meiðsl hans reyndust alvarleg.