Vill framlengja gildandi samning um ár

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra lýsti í dag yfir vilja til að …
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra lýsti í dag yfir vilja til að framlengja gildandi rammasamning um eitt ár. mbl.is/Eggert

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti hugmyndir sínar um framtíðarfyrirkomulag við kaup á þjónustu sérgreinalækna á fundi í velferðarráðuneytinu í dag. Á fundinum lýsti Svandís vilja sínum til að framlengja gildandi rammasamning um eitt ár meðan unnið yrði að breyttu fyrirkomulagi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Núgildandi samningur rennur út um áramótin og höfðu sérfræðilæknar lýst því yfir að þeir myndu ekki vinna áfram eftir samningnum mánuð í senn eftir þann tíma.

Í fréttatilkynningu ráðuneytisins segir að heilbrigðisráðherra leggi áherslu á vilja sinn „til að koma á skipan sem stuðlar að samfelldri þjónustu við sjúklinga og tryggir sem best samspil milli meginstoða heilbrigðiskerfisins, þ.e. heilsugæslu, heilbrigðisstofnana, sjálfstætt starfandi heilbrigðisstétta og sérhæfðra sjúkrahúsa.“

Kallar á vandaða greiningarvinnu

Í tilkynningu ráðuneytisins segir einnig að ráðherra segi ljóst að endurskipuleggja þurfi fyrirkomulag þessara mála og að ýmsar leiðir komi til greina í þeim efnum. Þar horfi ráðherra sérstaklega til kaupa á þjónustu sérgreinalækna á grundvelli sérstakrar forauglýsingar, þar sem samið yrði við skipulagðar rekstrareiningar sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks.

Þar sem breytt fyrirkomulag kallar á vandaða greiningarvinnu, góðan undirbúning og samráð við hagsmunaaðila er æskilegt að framlengja gildandi rammasamning, samkvæmt því sem kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins.

Enn fremur er tekið fram að framkvæmd hans á gildistímanum „verði að byggja á niðurstöðu héraðsdóms sem kveður á um að fram fari faglegt mat á hverri umsókn læknis sem óskar eftir að starfa á grundvelli rammasamningsins“.

Vongóð um að allir geti vel við unað

„Ég er vongóð um að það megi ná niðurstöðu um fyrirkomulag sem allir geta vel við unað og sem er í þágu sjúklinga,“ er haft eftir Svandísi í fréttatilkynningu ráðuneytisins, en til fundarins í dag voru boðaðir sömu aðilar og ráðherra fundaði með í júlí síðastliðnum til að ræða um þjónustu sérgreinalækna og faglegt fyrirkomulag hennar með stefnumótun til framtíðar að leiðarljósi.

Þetta voru fulltrúar frá Samtökum heilbrigðisfyrirtækja, Læknafélagi Íslands, Sjúkratryggingum Íslands, Læknafélagi Reykjavíkur, Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, auk eins fulltrúa sameiginlega frá heilbrigðisstofnunum allra heilbrigðisumdæma landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert