Setti fólk nokkuð upp trampólín?

Þeir sem settu trampólín upp í sumar ættu að vara …
Þeir sem settu trampólín upp í sumar ættu að vara sig á hvassviðrinu. Ljósmynd/Magnús Ásmundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veltir því fyrir sér á Facebook hvort fólk hafi hvort eð er nokkuð sett upp trampólín í sumar. Líklega vísar hún þar til sumarveðursins sem var ekki upp á sitt besta í ár.

Lögreglan varar við því að bálhvasst verði fram að hádegi. Þeir sem settu upp trampólín í sumar, og hafa ekki tekið þau niður, ættu því að hafa varann á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert