Sjö bílar skemmdir á Suðurnesjum

mbl.is/Eggert

Eignaspjöll voru unnin á sjö bifreiðum í Keflavík að morgni sunnudags. Hliðarspeglar höfðu verið brotnir og bifreiðarnar dældaðar, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Lögreglan handtók mann sem er grunaður um verknaðinn. Hann bar við minnisleysi sökum ölvunar við skýrslutöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert