Bannað samkvæmt lögum, nema í örstutta stund

Ökutæki í lausagangi losar mikið magn af loftmengandi efnum sem …
Ökutæki í lausagangi losar mikið magn af loftmengandi efnum sem geta verið heilsuspillandi. mbl.is/​Hari

Það er bannað samkvæmt lögum að láta kyrrstætt ökutæki ganga lengur en í örstutta stund, nema sérstaklega standi á. Umhverfisstofnun (UST) vekur athygli á þessu og vill biðla til ökumanna að virða rétt fólks til að anda að sér heilnæmu lofti. 

„Eins og flestir vita valda ökutæki í lausagangi heilsuspillandi mengun. Færri vita e.t.v. að það er bannað samkvæmt lögum að láta kyrrstætt ökutæki ganga lengur en í örstutta stund, nema sérstaklega standi á,“ segir á vef Umhverfisstofnunar. 

Bannað að skilja ökutæki eftir í gangi þegar þau eru yfirgefin

Reglur um lausagang bifreiða er að finna í umferðarlögum nr. 50/1987, en í 35. gr. segir: „Ökumaður vélknúins ökutækis skal haga meðferð þess og akstri þannig, að frá því stafi eigi hávaði eða loftmengun að óþörfu.“

Í 6.2. grein reglugerðar nr. 788/1999 um varnir gegn loftmengun af völdum hreyfanlegra uppsprettna er einnig kveðið á um að: „Óheimilt er að skilja ökutæki eftir í gangi þegar þau eru yfirgefin. Jafnframt er óheimilt að láta vélar kyrrstæðra ökutækja ganga lengur en í örstutta stund nema sérstaklega standi á. Regla þessi á ekki við um ökutæki lögreglu, slökkviliðs o.þ.h.“

Aukin loftmengun eykur líkur á hjartaáföllum og heilablóðföllum

Umhverfisstofnun bendir á, að ökutæki í lausagangi losi mikið magn af loftmengandi efnum sem geti verið heilsuspillandi. Að anda að sér mikilli loftmengun geti valdið fólki töluverðum óþægindum svo sem ertingu í öndunarfærum og augum. Einnig hafi verið sýnt fram á að aukin loftmengun auki líkur á hjartaáföllum og heilablóðföllum auka annarra heilsuspillandi áhrifa.

„Algengt er að sjá ökumenn sendiferðabíla afferma bílinn meðan hann er í gangi. Ökumaðurinn sjálfur andar þá að sér mestu menguninni. Því er til mikils að vinna fyrir ökumanninn að draga úr mengun frá bílnum með því að hafa hann ekki í lausagangi, þar sem því verður við komið,“ segir á vef UST.

Ökumenn virði rétt fólks til að anda að sér heilnæmu lofti

Þá segir, að markmið í aðgerðum stjórnvalda tengdum loftgæðum, Hreint loft til framtíðar – Áætlun um loftgæði á Íslandi 2018/-2029 sé að draga úr mengun frá umferð og þar eigi m.a. við að takmarka lausagang ökutækja.

„Umhverfisstofnun vill biðla til ökumanna að virða rétt fólks til að anda að sér heilnæmu lofti. Stofnunin vill sérstaklega biðla til ökumanna að hafa ekki ökutæki í lausagangi að óþörfu og þá sérstaklega við heilbrigðisstofnanir, grunnskóla, leikskóla og við íbúðarhús. Með aukinni vitundarvakningu drögum við úr mengun og aukum heilnæmi nærumhverfis okkar allra.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert