„Ég lagði alltaf upp með að nafn hans yrði hreinsað“

„Ég er bara rosalega glöð og ánægð. Þetta er náttúrulega búið að vera í fanginu á mér í mörg mörg ár. Ég bara óska allri þjóðinni til hamingju með þetta,“ sagði Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, ekkja Tryggva Rúnars Leifssonar, eftir niðurstöðu Hæstaréttar í endurupptöku á Guðmundar- og Geirfinnsmáli í dag. „Núna vita allir sem ég vissi að þetta var bara bull. Ég lagði alltaf upp með það að nafn hans yrði hreinsað og það er búið að gera.“ 

Fimm dóm­ar­ar í Hæsta­rétti komust í dag að þeirri niður­stöðu að sýkna bæri Kristján Viðar Júlí­us­son, Sæv­ar Marinó Ciesi­elski, Tryggva Rún­ar Leifs­son, Al­bert Kla­hn Skafta­son og  Guðjón Skarp­héðins­son af öll­um sak­argift­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert