Eigandi peninganna fundinn

Eigandi peninganna fannst að lokum.
Eigandi peninganna fannst að lokum. mbl.is/Eggert

Eigandi peninga sem gleymdust í hraðbanka á Suðurnesjum á fimmtudaginn er fundinn. Lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir eigandanum á fimmtudagskvöldið, en þá höfðu tveir ungir menn komið með peningana til lögreglunnar. Höfðu þeir verið á eftir manninum sem gleymdi peningunum í röð í hraðbankann og stokkið á eftir honum, en ekki náð honum og horft á hann aka á brott.

Lögreglan á Suðurnesjum greinir frá þessum ánægjulegu málalokum í dag og segir að eigandinn hafi óskað eftir að komast í samband við drengina sem fundu aurinn. Þá tekur lögreglan einnig fram að þó hægt sé að finna út hver taki út peninga þurfi lögreglan að virða bankaleynd og að ekki fáist neinar upplýsingar úr kerfum bankanna nema með dómsúrskurði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert