Greiða vangoldna leigu fyrir Ýmishús

Stofn­un múslima er eig­andi Ýmishúss­ins, en það var keypt árið …
Stofn­un múslima er eig­andi Ýmishúss­ins, en það var keypt árið 2010. mbl.is/Árni Sæberg

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Menningarsetur múslima til að greiða Stofnun múslima á Íslandi rúmlega 8,6 milljónir í vangoldna leigu og málskostnað, auk dráttarvaxta. Stofnun múslima var jafnframt sýknuð af kröfum Menningarsetursins um að viðurkenndur yrði leiguréttur Menningarsetursins að Ýmishúsinu.

Forsaga deilna félaganna tveggja er löng og tengist hún Ýmishúsinu að Skógarhlíð 20. Stofn­un múslima er eig­andi húss­ins, en það var keypt árið 2010. Stofn­un­in fullyrti árið 2016 að hún hefði gert af­nota­samn­ing við Menn­ing­ar­setrið og að staðið hafi til að gerður yrði húsa­leigu­samn­ing­ur. Drög að þeim samn­ingi hafi verið gerð og dag­sett 20. des­em­ber 2012 og átt að gilda til 31. des­em­ber 2023. Næsta dag hafi hins veg­ar verið ákveðið að breyta fyr­ir­komu­lag­inu og gefa Menn­ing­armiðstöðinni af­nota­rétt af hluta húss­ins án end­ur­gjalds. Þetta hafi verið staðfest með samn­ingi sem er dag­sett­ur 21. des­em­ber 2012, en að fyrri samn­ing­ur­inn hafi með þessu verið feld­ur niður. Í júní 2016 lét Stofnun múslima á Íslandi bera út Menningarsetrið. 

Héraðsdómur hafnaði kröfu Menningarsetursins um að fá viðurkenndan leigurétt að húsinu en féllst á gagnkröfu Stofnunar múslima um skaðabætur vegna afnota Menningarsetursins á húsinu á tímabilinu 2015-2016. Telur dómurinn að það hafi komið í veg fyrir að Stofnun múslima gæti hagnýtt sér það, til dæmis með útleigu.

Í niðurstöðu dómsins segir að Stofnun múslima á Íslandi hefði orðið fyrir fjárhagstjóni sem nemi þeim leigutekjum sem hún hefði annars getað aflað sér vegna neðri hæðar húsnæðisins frá og með 2. júlí 2015 til og með 1. júní 2016, alls í 11 mánuði. Upphæðin er metin vera 6.279.438 krónur, auk dráttarvaxta. Auk þess er farið fram á að Menningarsetur múslima á Íslandi greiði málskostnað sem nemur 2.350.000 krónum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert