Kristrún formaður sáttanefndar

Frá dómsuppkvaðningu Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu í síðustu viku.
Frá dómsuppkvaðningu Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu í síðustu viku. mbl.is/​Hari

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur í samræmi við samþykkt ríkisstjórnar Íslands frá 28. september skipað nefnd til að leiða fyrir hönd stjórnvalda sáttaviðræður við fyrrverandi sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, sem sýknaðir voru með dómi Hæstaréttar Íslands í síðustu viku.

Nefndina skipa:

  • Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur, sem fulltrúi forsætiráðuneytis og formaður nefndarinnar.
  • Bryndís Helgadóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu.
  • Magnús Óskar Hafsteinsson, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Kristrún Heimisdóttir.
Kristrún Heimisdóttir. Ljósmynd/Aðsend


„Verkefni nefndarinnar eru nánar tiltekið að koma fram fyrir hönd stjórnvalda í viðræðum og sáttaumleitunum við aðila málsins og aðstandendur þeirra og gera tillögu til forsætisráðherra og ríkisstjórnar um hugsanlega greiðslu miska- og skaðabóta eða eftir atvikum svonefndra sanngirnisbóta til aðila málsins og aðstandenda þeirra,“ segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert