Frelsisverðlaun SUS veitt í kvöld

Kristján Loftsson ávarpaði samkomuna, en fyrirtæki hans, Hvalur hf, hlaut …
Kristján Loftsson ávarpaði samkomuna, en fyrirtæki hans, Hvalur hf, hlaut verðlaun.

Frelsisverðlaun SUS voru veitt við hátíðlega athöfn í Valhöll í kvöld. Var þetta í tólfta sinn sem verðlaunin voru veitt en stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) veitir verðlaunin. 

Að venju voru verðlaunin veitt einum einstaklingi og einum lögaðila. Báðir verðlaunahafar í ár eiga það sameiginlegt að berjast fyrir auknu atvinnufrelsi, að því er segir í tilkynningu frá SUS.

Ásdís Halla Bragadóttir hlaut verðlaunin fyrir áralanga baráttu sína fyrir auknu valfrelsi í heilbrigðis- og menntamálum. „Sem bæjarstjóri Garðabæjar studdi hún við sjálfstæðan rekstur skóla í sveitarfélaginu. Hefur það leitt til þess að skólakerfið í Garðabæ er fjölbreyttara, sveigjanlegra og þjónustar nemendur betur en ella. Þá hefur Ásdís verið áberandi í umræðunni á þessu ári um baráttu Kliníkurinnar í Ármúla fyrir sjálfstæðum rekstri í heilbrigðiskerfinu. Slíkur rekstur bætir þjónustu við sjúklinga, styttir biðraðir og nýtir skattfé betur,“ segir í rökstuðningi fyrir valinu.

Sá lögaðili sem hlaut verðlaunin í ár er Hvalur hf., en Kristján Loftsson, forstjóri fyrirtækisins, tók við verðlaununum. „Hvalur hf. hlaut verðlaunin fyrir baráttu sína fyrir hvalveiðum á Íslandsmiðum. Hvalveiðar fela í sér mikilvægt atvinnufrelsi en Hvalur hf. hefur í fjölmörg ár barist fyrir því að veiðar á hvölum séu leyfðar, enda er um sjálfbæra nýtingu að ræða sem styðst við vísindaleg gögn,“ að því er segir í rökstuðningi.

Ingvar S. Birgisson, formaður SUS, ávarpaði fundinn og veitti verðlaunin fyrir hönd stjórnarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert