Leigjendur stofnuðu hagsmunafélag

Pálína Sjöfn, nýkjörinn formaður Félags leigjenda hjá Félagsbústöðum.
Pálína Sjöfn, nýkjörinn formaður Félags leigjenda hjá Félagsbústöðum. Ljósmynd/Alda Lóa Leifsdóttir

Leigjendur hjá Félagsbústöðum stofnuðu í kvöld með sér hagsmunafélag, Félag leigjenda hjá Félagsbústöðum, á vel sóttum fundi í Dósaverksmiðjunni í Borgartúni. Félagið verður aðili að Samtökum leigjenda á Íslandi.

„Það kom vel fram á fundinum að það er þörf fyrir svona félag,“ segir Pálína Sjöfn Þórarinsdóttir í tilkynningu en hún var kjörin formaður félagsins.

„Það er megn óánægja með Félagsbústaði sem leigusala og einnig samskipti fólks við velferðarsvið borgarinnar. Það kom í ljós á fundinum að fólk er að reka sig á sömu vandamálin, upplifir sama skort á upplýsingum og það var sameiginleg upplifun flestra á fundinum að bæði Félagsbústaðir og velferðarsvið koma fram við leigjendur hjá félagsbústöðum og fólk á biðlistum sem annars flokks. Viðhorfin eru að fólk eigi bara að vera þakklátt fyrir að fá húsnæði og ekki vera með neina kröfur. En nú erum við risin upp, höfum sameinast og við ætlum að gera kröfur,“ bætir hún við í tilkynningunni.

Deildu reynslu sinni af félagslega kerfinu 

Fundargestir deildu reynslu sinni af félagslega kerfinu. „Enginn sem lent hefur í þessari stöðu skilur hvers vegna kerfið þarf að vera svona grimmt,“ segir Pálína Sjöfn í tilkynningunni. „Við deilum því sambærilegri reynslu og öryrkjar og eftirlaunafólk, að vera innan kerfis sem í nafninu á að styðja fólk en sem í reynd heldur fólki niðri.“

Á fundinum var rætt um gæludýramál en margt fólk hefur þurft að láta frá sér gæludýr þegar það fær úthlutað íbúð hjá Félagsbústöðum. Hundar og kettir eru bannaðir í íbúðum félagsins en heimilt er að hafa fiska eða hamstur í búri.

Með stofnun þessa félags hafa leigjendur hjá Félagsbústöðum eignast sameinaða rödd,“ segir Laufey Ólafsdóttir, sem er ritari stjórnar.

Fyrsti fundur á þriðjudaginn 

Auk Laufeyjar og Pálínu sitja í stjórn félagsins Hildur Oddsdóttir varaformaður og Vigdís Erla Rafnsdóttir og Geirdís Hanna Kristjánsdóttir meðstjórnendur. Til vara eru Anna Sigríður Guðmundsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. Stjórnin hittist á sínum fyrsta fundi á þriðjudaginn og mun þá skipta með sér verkum.

Á fundinum í kvöld var ákveðið að fela stjórninni að safna sögum leigjenda hjá Félagsbústöðum og birta opinberlega svo fólk fengi að vita um aðstæður hópsins, en ekki undir nafni þeirra sem ættu sögurnar, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Þetta er aldeilis frábærar fréttir,“ segir Margrét Kristín Blöndal, nýkjörinn formaður Samtaka leigjenda á Íslandi, í tilkynningunni. „Eina von leigjenda er að standa saman og samstaða leigjenda hjá Félagsbústöðum er eina leið þeirra til að bæta kjör sín og aðstæður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert