Unnu 2,5 milljónir í Happdrætti Háskólans

Tveir heppnir miðaeigendur fengu 2,5 milljónir króna hvor í októberútdrætti Happdrættis Háskóla Íslands en dregið var í kvöld. Þá voru sex miðaeigendur sem fengu eina milljón hver og hvorki fleiri né færri en fjórtán sem fengu 500.000 í sinn hlut.

Heildarfjárhæð útgreiddra vinninga í útdrættinum er 99 milljónir króna sem skiptist á milli 3.334 heppinna miðaeigenda.

Heildarupphæð sem Happdrættið hefur greitt til vinningshafa á árinu 2018 er 1,1 milljarður króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert