Björgunarsveit aðstoðaði við tökur

Jónas Sig og Tómas Jónsson í flæðaskerinu við tökur á …
Jónas Sig og Tómas Jónsson í flæðaskerinu við tökur á nýjasta lagi Jónasar. Mynd/Bernhard Kristinn

„Ég er með reglu þegar ég er að semja að aldrei að tala í boðhætti. En stundum er gott að búa til reglu og brjóta hana svo,” segir Jónas sposkur um titil lagsins Dansiði. Grjóthart, en kraftmikið dansvænt lag myndi einhver segja um nýjasta lag Jónasar Sig, en lag og texti er eftir hann sjálfan. Lagið verður að finna á plötunni Milda hjartað, sem kemur út í nóvember en síðasta plata hans kom út 2012 og frá þeim tíma hafa einnig komið út lögin Vígin falla og Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá sem kom út árið 2015.

Komið að „glamúr“ hlutanum

Jónas hefur unnið að plötunni undanfarin tvö ár ásamt Ómari Guðjónssyni sem hefur stjórnað upptökum og útsetningum. Þegar spurður út í ferlið í síðdegisþætti K100 segist hann núna kominn í glamúrhluta útgáfunnar, allt sé klappað og klárt til sýningar. Það er þó langur aðdragandi og mikil vinna sem hefur verið lögð í plötuna og verkefnið í heild. „Fólk sér kannski ekki þegar maður skríður ofan í myrkan kjallara snemma á sunnudagsmorgni til að taka upp orgel í heilan dag,“ útskýrir hann er spurður út í ferlið. „Stundum finnst manni eins og þetta sé allt að fara til fjandans en svo smellur það saman,“ útskýrir Jónas sem segist orðinn mjög sáttur við það sem komið er.

Píanóið flaut um í sjónum

Bernhard Kristinn leikstýrir myndbandinu sem var tekið upp í fjöruborðinu við Þorlákshöfn, heimabæ Jónasar. Það vekur athygli hve dramatískar aðstæður eru á tökustað.  Á myndum á kynningarsíðu bandsins má sjá hvernig Jónas og píanóleikarinn Tómas Jónsson eru komnir vel út í sjó er líða fer á tökurnar. Jónas segist spenntur fyrir að sjá tökurnar í heild og þetta hafi raunverulega verið svona tilþrifamikið og þeir hafi notið liðsinnis björgunarsveitar Þorlákshafnar við tökurnar.
„Það var háfjara. Við stilltum upp píanóinu og svo byrjuðum við bara að spila og syngja og taka upp. Svo bara flæddi að og í lokin var pianóið farið að fljóta um og allt komið á hvolf og við á kaf í sjó,“ segir Jónas um tökurnar.

Listsköpun kallar á áhættu

Spurður hvort hann sé smellasmiður þá hlær hann og svarar með einföldu „Ég veit það ekki. Kannski,“ segir hann svo hugsi, en spyr á móti hvað sé eiginlegur smellur.
„Ég fæ stundum tilfinningu að það sé eitthvað í laginu og þá reyni ég að elta þá tilfinningu og það verður yfirleitt gott,“ útskýrir Jónas en eftir hann liggja smellir á borð við lögin Hamingjan er hér, Rangur maður, Hafið er svart og fleiri vinsæl lög sem hann hefur ýmist flutt með Sólstrandargæjunum, Lúðrasveit Þorlákshafnar eða Ritvélum framtíðarinnar. En hann segir listamanninn aldrei geta gengið að neinu vísu.
„Ef þú ert virkilega að skapa þá tekur þú alltaf áhættu. Þá getur þú aldrei gengið út frá síðasta sigri og að hann sé eitthvað að fara að endurtaka sig,“ segir hann. Þegar spurður út í verklagið við lagasmíðarnar og útgáfumagn segist hann ekki semja hundrað lög og gefa svo 10 af þeim út á plötu líkt og margir gera, heldur vinni hann strax með tíu til fimmtán hugmyndir að lögum, sem hann gefi svo út í heild. Milda hjartað kemur út í nóvember og þá er spurning hvort enn fleiri smellir líti dagsins ljós. Eitt er þó gefið, við hlýðum og tökum þátt í lífsins dans.

Greinin birtist í Morgunblaðinu fimmtudaginn 11. október. 

 
 

 

Jónas Sig hér við tökur á myndbandi í Þorlákshöfn.
Jónas Sig hér við tökur á myndbandi í Þorlákshöfn. Mynd/Skjáskot úr myndbandi Jónasar Sig
Hér sjást þeir Jónas Sig og Tómas píanóleikari úr fjarlægð …
Hér sjást þeir Jónas Sig og Tómas píanóleikari úr fjarlægð í flæðaskerinu staddir. Mynd/Jónas Sig
Mynd/Skjáskot úr myndbandi Jónasar Sig.
Mynd/Skjáskot úr myndbandi Jónasar Sig. Fjöldi dansara og annarra dansa í myndbandi við lagið.
Jónas Sig dansandi í eigin myndbandi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert