Úttekt á heildsölu lyfja

Heildsöluverð á lyfjum í nágrannalöndum Íslands verður skoðað.
Heildsöluverð á lyfjum í nágrannalöndum Íslands verður skoðað. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Velferðarráðuneytið hefur samið við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um úttekt á heildsölu lyfja hér á landi. Skoðað verður hvernig heildsala hefur þróast í kjölfar lagabreytinga árið 1996, hver sé þörf heildsölu- og dreifingarfyrirtækja fyrir álagningu og hvernig samkeppni á heildsölumarkaði með lyf hér á landi er háttað.

Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Þar kemur fram að verkefnið tengist úttekt á smásölu lyfja sem ráðuneytið hafði áður ákveðið að ráðast í og Hagfræðistofnun Háskólans vinnur að samkvæmt samningi þar að lútandi.

Úttekt á heildsölu lyfja skiptist í grófum dráttum í þrjá þætti:

Reikningar heildsölufyrirtækja verða skoðaðir og bornir saman við innflutningstölur og tekinn verður saman kostnaður við heildsölu. Stærð fyrirtækja og markaðshlutdeild verður skoðuð og hugað að því hvort samhengi er með þessu og afkomu fyrirtækja á markaðinum.

Heildsöluverð á lyfjum í nágrannalöndum Íslands verður skoðað.

Áhrif lagabreytingar frá árinu 1996 verður könnuð en þá kom hámarksverð í stað heildsöluálagningar. Því verður velt upp hvaða áhrif breytingin hafði á kostnað, verð og afkomu í heildsölu.

Gert er ráð fyrir því að verkinu ljúki fyrir áramót með skýrslu Hagfræðistofnunar til ráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert