Vöðvasullur greinist í sauðfé

Eftirlitsdýralæknar Matvælastofnunar á sláturhúsum hafa fundið vöðvasull (Cysticercus ovis) í …
Eftirlitsdýralæknar Matvælastofnunar á sláturhúsum hafa fundið vöðvasull (Cysticercus ovis) í sauðfé frá nokkrum bæjum. mbl.is/Árni Torfason

Vöðvasullur hefur greinst í fé frá nokkrum bæjum við heilbrigðiseftirlit á sláturhúsum. Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að sullurinn sé ekki hættulegur fólki en veldur tjóni vegna skemmda á kjöti. Um er að ræða blöðrur í vöðvum sem innihalda lirfustig bandorms sem lifir í hundum. 

„Líkt og undanfarin ár hafa eftirlitsdýralæknar Matvælastofnunar á sláturhúsum fundið nú í haust vöðvasull (Cysticercus ovis) í sauðfé frá nokkrum bæjum,“ segir í tilkynningu. Greining hefur verið staðfest af sérfræðingum á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Vöðvasullur er ekki hættulegur fyrir fólk en veldur tjóni vegna skemmda á kjöti og óþægindum fyrir féð.

Brýnt er fyrir hundaeigendum að láta ormahreinsa hunda sína. „Ef hundur étur hrátt kjöt sem inniheldur vöðvasull komast lirfurnar í meltingarveg hundsins þar sem þær verða að fullorðnum ormum. Egg ormanna fara út með saur hundsins og geta þaðan borist í sauðfé,“ segir í tilkynningu. 

Matvælastofnun vill jafnframt beina þeim tilmælum til refaskyttna að leggja ekki út hræ af kindum fyrir refi.

Vöðvasullur eru blöðrur í vöðvum sem innihalda lirfustig bandorms sem …
Vöðvasullur eru blöðrur í vöðvum sem innihalda lirfustig bandorms sem lifir í hundum. Ljósmyndir/Tilraunastöð HÍ í meinafræðum
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert