Álagningarskrár verði birtar rafrænt

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, er einn af flutningsmönnum …
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, er einn af flutningsmönnum tillögunnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þingsályktunartillaga um rafræna birtingu álagningarskrár sem verði aðgengileg allt árið hefur verið lögð fram á Alþingi í þriðja sinn.

Lagt er til að hætt verði að birta álagningarskrá skattyfirvalda á pappír eins og hefur verið gert um áratuga skeið.

Í greinargerð kemur fram að tillagan hafi fyrst verið flutt á 147. löggjafarþingi en hafi ekki komið til umræðu. Hún var endurflutt á 148. löggjafarþingi og gekk þá til efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni fyrri umræðu en hlaut ekki afgreiðslu á því þingi.

Flutningsmenn tillögunnar eru fimm þingmenn Vinstri grænna, eða þau Andrés Ingi Jónsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir.

Langtum hentugra

„Að mati flutningsmanna samræmist þessi skipan, ef hún kemst á, betur en núverandi framkvæmd 2. mgr. 98. gr. laga um tekjuskatt þar sem segir að skattskrá skuli vera til sýnis „á hentugum stað“ í tvær vikur eftir að álagningu er lokið. Skattskil eru nú öll orðin rafræn þannig að eðlilegt hlýtur að teljast að birta álagningarskrá með þeim hætti, enda langtum hentugra fyrir bæði skattyfirvöld og notendur álagningarskrárinnar að hafa þennan hátt á með tilliti til þeirrar tækni sem nú er almennt beitt,“ segir í greinargerðinni.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir. mbl.is/Hari

Ekki einkamál greiðenda

Þar kemur einnig fram að skattgreiðslur – undirstaða velferðarkerfisins, séu ekki einkamál greiðanda heldur lögbundin samfélagsleg skylda. Rétt sé að líta á upplýsingar um álagða skatta sem opinber gögn og bent er á að sú sé raunin hvarvetna á Norðurlöndum nema í Danmörku þar sem ekki eru veittar upplýsingar um álagða skatta á einstaklinga.

„Einnig skal á það bent að fátt er áhrifaríkara til að hamla gegn lögbrotum og spillingu en gagnsæi og greið upplýsingagjöf. Er birting álagningarskrár þannig mikilvægur hluti upplýsingagjafar um samfélagsmálefni sem varðar almenning miklu og eykur í senn umræðu um skattamál og veitir aðhald í þeim efnum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert