Missti af fingri í færibandi

mbl.is/Arnþór Birkisson

Vinnuslys varð á Suðurnesjum í vikunni, en starfsmaður fyrirtækis í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum klemmdi hönd í færibandi þannig að hluti eins fingurs fór af við fremsta lið. 

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að starfsmaðurinn hafi verið að hreinsa óhreinindi af færibandinu sem hafði verið stöðvað en það fór svo allt í einu af stað með fyrrnefndum afleiðingum. Starfsmaðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala í Fossvogi.

Þá varð vinnuslys á Keflavíkurflugvelli þegar starfsmaður rann til á færibandi og féll af því á jörðina. Hann var að loka farangursrými flugvélar þegar óhappið varð. Maðurinn fann til verkjar eftir fallið og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert