Víðtæk bilun hjá Vodafone

Ljósmynd/Aðsend

Víðtæk bilun hefur verið í fjarskiptakerfi Vodafone í morgun, sem hafði áhrif á bæði fyrirtæki og almenning.

„Ég var að fá þau skilaboð að þetta á að vera komið í lag,“  segir Guðfinnur Sigurvinsson, upplýsingafulltrúi Vodafone, í samtali við mbl.is.

Bilunin hafði áhrif á bæði fyrirtæki og almenning. „Ég hef fundið fyrir þessu sjálfur,“ segir Guðfinnur.

Bilunin var tilkomin vegna uppfærslu á kerfum. „Það er alltaf ákveðin hætta á að það geti orðið útfall henni samfara. Menn töldu sig hafa fyrirbyggt það, en þetta gerðist.“

Strax var farið á fullt í að laga bilunina, en að sögn Guðfinns lá kerfið niðri í um hálftíma.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert