Árekstur varð á Brúnavegi, skammt frá Laugarásvegi í Reykjavík, á öðrum tímanum í dag. Þar rákust saman tveir bílar.
Lögreglan fór á staðinn sem og sjúkrabifreið, en að sögn varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var um minni háttar óhapp að ræða sem var leyst á staðnum. Enginn var fluttur á slysadeild.
Þá segir varðstjóri í samtali við mbl.is, að nokkur erill hafi verið í sjúkraflutningum í dag.