Milt veður í dag

Víða verður léttskýjað á Norður- og Norðausturlandi í dag. Þá …
Víða verður léttskýjað á Norður- og Norðausturlandi í dag. Þá er spáð að hitinn verði á bilinu 3 til 8 stig yfir daginn. mbl.is/​Hari

Veðurstofan spáir sunnan golu eða kalda í dag. Skúrir verða sunnan- og vestanlands í dag, en víða léttskýjað á Norður- og Norðausturlandi. Hiti verður á bilinu 3 til 8 stig yfir daginn. 

Á morgun verður svipað veður, en austan og norðaustan 8-13 m/s og rigning á þriðjudag, að því er segir á vef Veðurstofu Íslands.

Á miðvikudag er útlit fyrir vestanátt með skúrum eða éljum, en þurru og björtu veðri austan og suðaustanlands. Heldur kólnandi.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert