„Innri endurskoðun hlífir engum“

Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna.
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna. mbl.is/Kristinn Magnúsosn

„Það var gott að það var farið fram á að innri endurskoðun tæki út þessar framkvæmdir og viðhald við Írabakka,“ segir Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG, um úttekt sem gerð var vegna um­fram­kostnaðar við end­ur­bæt­ur á íbúðum Fé­lags­bú­staða við Írabakka í Reykja­vík.

Stjórn Fé­lags­bú­staða samþykkti fram­kvæmd­ir fyr­ir 398 millj­ón­ir króna á ár­un­um 2012 til 2016 en heild­ar­kostnaður­inn reynd­ist að lok­um 728 millj­ón­ir og nem­ur framúr­keyrsl­an því 83%. Fram­kvæmda­stjóri Fé­lags­bú­staða, Auðun Freyr Ingvars­son, sagði af sér í kjöl­far út­tekt­ar­inn­ar.

Það var í  maí 2016 að stjórn og fram­kvæmda­stjóri Fé­lags­bú­staða óskuðu eft­ir því við innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borg­ar að hún gerði út­tekt á viðhalds­verk­efni fé­lags­ins við Írabakka 2-16 á ár­un­um 2012 -2016. Líf segir að henni hafi þótt þetta taka fulllangan tíma en er ánægð með skýra niðurstöðu.

Mér þykir líka gott að vera í meirihluta sem er með vökul augu sem tekur á þessum málum strax frá upphafi,“ segir Líf.

Í ljósi umræðu síðustu daga í tengslum við Braggamálið, sem innri endurskoðun Reykjavíkurborgar á að ráðast í heildarúttekt á, segir Líf að þetta dæmi sýni að hún sé fullkomlega sjálfstæð eining og virki vel. „Þessu er svolítið snúið á haus í umræðunni en þetta er nákvæmlega hennar hlutverk. Innri endurskoðun hlífir engum og gagnrýnir það sem úrskeiðis fer.“

Hún segir að ný stjórn Félagsbústaða hafi strax hafist handa við að bæta verkferla og að hún beri fullt traust til stjórnarinnar til að gera þær úrbætur sem þurfi að ráðast í.

„Auðunn hefur skilað nokkuð góðu starfi og mér finnst virðingarvert hjá honum að axla þessa ábyrgð og segja upp,“ segir Líf og bætir við að það sé að hennar mati löngu tímabært að færa Félagsbústaði í nútímalegra form:

„Ég held að það sé orðið löngu tímabært að gera Félagsbústaði að nútímalegu félagi í eigu borgarinnar. Ég held að það sé verkefni þessa kjörtímabils.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert