Krefst svara um mál geðsjúkra fanga

Umboðsmaður hefur síðustu ár ítrekað vakið athygli á nauðsyn þess …
Umboðsmaður hefur síðustu ár ítrekað vakið athygli á nauðsyn þess að bæta úr geðheilbrigðisþjónustu við fanga. Rax / Ragnar Axelsson

Skortur á skýrum svörum bæði dómsmála- og heilbrigðisráðuneytis um hvað gera eigi til að tryggja mannréttindi geðsjúkra fanga með fullnægjandi hætti, hefur leitt til þess að umboðmaður Alþingis kynnti forsætisráðherra málið til að samhæfa stefnu og aðgerðir ráðherra.

Þau gögn sem umboðsmaður kynnti fyrir forsætisráðherra eru bréf sem send voru heilbrigðisráðherra og langvarandi bréfasamskipti við bæði heilbrigðis- og dómsmálaráðneyti þar sem þrýst er á úrbætur. Þetta kemur fram á heimasíðu umboðsmanns Alþingis.

Þar kemur fram að umboðsmaður hafi um langt skeið skrifast á við bæði heilbrigðis- og dómsmálaráðuneyti vegna geðheilbrigðisþjónustu fanga. Þá hafi fangelsismálayfirvöld lýst áhyggjum sínum af því að á Litla-Hrauni hafi verið vistaðir fangar með alvarleg geðræn vandamál.

Dómsmálaráðuneytið hafi tekið undir slíkar áhyggjur í svörum til umboðsmanns og enn fremur lýst að framkvæmd laga um fullnustu refsinga tryggi ekki með fullnægjandi hætti réttindi fanga samkvæmt mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu.

Í ljósi þessa óskaði umboðsmaður eftir frekari upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu til að sjá hvort afstaða ráðuneytisins myndi leiða til aðgerða. Af þeim svörum og öðrum, við fyrirspurnum til ráðuneytanna beggja, verði hins vegar ekki séð að þessum málum hafi enn verið komið í skýran farveg. Hvorki virðist hafa verið gerðar áætlanir til úrbóta né teknar ákvarðanir til að bregðast við.

Staða mál lítið breyst þrátt fyrir svör um annað

Umboðsmaður sendi því bréf til heilbrigðisráðherra til að fá svör við því sem allra fyrst hvað ráðneytið ætli að gera í stöðunni. Greiða þurfi úr málinu með samstarfi dómsmálaráðuneytis, velferðarráðuneytis og eftir atvikum annarra stjórnvalda.

„Síðustu ár hefur umboðsmaður ítrekað vakið athygli á nauðsyn þess að bætt verði úr geðheilbrigðisþjónustu við fanga og bent á að hún sé líklega ekki í samræmi við mannréttindareglur. Svör yfirvalda hafa jafnan verið á þá leið að unnið sé að úrbótum og nefnd eða starfshópur hafi fjallað um málið eða að skipa ætti slíkan hóp til þess að fjalla um málið og koma með tillögur. Staða þessara mála hefur því lítið breyst.“

Í bréfi sínu til heilbrigðisráðherra minnir umboðsmaður á að honum hafi verið falið svokallað OPCAT- eftirlit sem fyrirhugað er að hefjist í október. Því sé nauðsynlegt að geta sem allra fyrst lokið athugun á þessum þætti í heilbrigðisþjónustu við fanga og þá eftir atvikum gert Alþingi grein fyrir málinu.

Umboðsmaður óskar eftir svari frá ráðuneytinu eigi síðar en 31. október næstkomandi.

„Samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands skal forsætisráðherra beita sér fyrir því að stefna og aðgerðir ráðherra á einstökum sviðum séu samhæfðar ef á þarf að halda. Áðurnefndur skortur á skýrum svörum ráðuneytanna varð til þess að umboðsmaður sendi forsætisráðherra afrit af bréfinu til heilbrigðisráðherra og þeim bréfum sínum og svarbréfum ráðuneytanna sem vísað er til.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert