Óboðinn gestur hreiðraði um sig í sófa

mbl.is/Eggert

Óboðinn ölvaður gestur heimsótti heimili í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gærkvöld og hreiðraði um sig í sófa í stofunni. Húsráðandi var á efri hæð að horfa á sjónvarp þegar hann heyrði umgang á neðri hæðinni.

Að sögn lögreglu taldi húsráðandinn í fyrstu að þar væru heimilisvinir á ferðinni en ákvað svo að athuga málið nánar og fór niður til að kanna málið. Þar sat hinn óboðni í stofusófanum og lét fara vel um sig.

Lögreglan segir enn fremur, að það hafi gengið erfiðlega að ræða við manninn sakir tungumálaörðugleika en lögreglumenn fjarlægðu hann svo og fluttu á lögreglustöð þar sem hann fékk gistingu að eigin ósk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert