Voru að atast í fé eiganda síns

Voru hundarnir að atast í fé eiganda síns. Mynd úr …
Voru hundarnir að atast í fé eiganda síns. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert

Tvö mál dýrbíta hafa komið inn á borð lögreglunnar á Suðurlandi undanfarna daga, en mbl.is greindi frá því um helgina að hund­ur hafi gengið laus í Ölfusi fyr­ir um viku og drepið þar hóp fjár.

Fann bóndi á svæðinu dautt lamb á föstu­dag fyr­ir rúmri viku. Á laug­ar­dag ákvað umráðamaður fjár­ins að at­huga aðstæður og fann þá sex dauðar kind­ur til viðbót­ar.

Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir annað málið varða tvo lausa hunda sem hafi verið við Ingólfsfjall. Var annar þeirra handsamaður og fluttur á dýraspítala til aflestrar á örmerki og var hann þar eftir þar til hefðist upp á eiganda hans sem myndi sækja hann. 

Hitt málið varðar hins vegar atvik sem varð í Grafningi, en vegfarandi sem var þar á ferð hafði afskipti af hundum sem voru að atast í fé bónda þar. Voru hundarnir að sögn Odds „mjög ósáttir við afskipti vegfarandans“ og sneri hann því frá vettvangi.  

Greint var frá því um helgina að sést hefði til hunds drepa þrjár kind­ur á um tíu mín­út­um á sunnu­dags­morg­un.

Segir Oddur athugun hafa leitt í ljós að hundarnir voru að atast í fé eiganda síns og tók bóndinn að sér að „ljúka því máli”. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert