Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 12 mánaða fangelsi og svipt hann ökuréttindum ævilangt fyrir að hafa framið fjögur mismunandi brot á árunum 2016 til 2018.
Maðurinn, sem játaði brotin, var dæmdur fyrir að hafa í tvígang ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna á Reykjanesbraut á síðasta ári og fyrir fjársvik með því að hafa tvívegis dagana 25. og 26. júlí árið 2016 blekkt starfsmann Arion banka og látið hann millifæra í tveimur færslum, samtals eina milljón króna, af reikning annarrar manneskju yfir á eigin reikning.
Einnig var maðurinn dæmdur fyrir að hafa í júlí síðastliðnum í versluninni Útilíf í Smáralind í Kópavogi stolið Nike-bol og –peysu, sem kostuðu samtals um 17 þúsund krónur.
Fram kemur í dóminum að maðurinn eigi að baki nokkurn sakaferil, einkum vegna umferðar- og fíkniefnalagabrot. Hann hlaut síðast dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur 26. október í fyrra.