Átta hjólbarðar sprungu

mbl.is/Arnþór

Skemmdir urðu á að minnsta kosti fimm bifreiðum í gærkvöld eftir að þeim hafði verið ekið ofan í stóra holu á Grindavíkurvegi.

Átta hjólbarðar undir bifreiðunum sprungu og ein felga var ónýt, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Lögreglumenn fóru á vettvang og reyndu eftir bestu getu að fylla holuna. Hún var í framhaldinu merkt með keilum til að fyrirbyggja skemmdir á fleiri bifreiðum. Framkvæmdir stóðu yfir á veginum og var holan talin hafa myndast í tengslum við þær

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert