Bjarg óskar eftir samstarfi við sveitarfélög

Bjarg íbúðafélag er með nokkur hundruð íbúðir í byggingu.
Bjarg íbúðafélag er með nokkur hundruð íbúðir í byggingu.

Bjarg íbúðafélag hefur óskað eftir viðræðum við Garðabæ, Mosfellsbæ, Kópavog og Seltjarnarnes um lóðir og stofnframlag vegna byggingar almennra íbúða í bæjarfélögunum. Bjarg er húsnæðissjálfseignastofnun, stofnuð af ASÍ og BSRB.

Félagið er nú með tæplega 240 íbúðir í byggingu og um 430 í hönnunarferli.  Stefnt er á að fyrstu íbúðir verði afhentar um mitt ár 2019, segir í tilkynningu

Félagið hefur gert viljayfirlýsingar við Reykjavík um byggingu 1.000 íbúða og Hafnarfjörð um 150 íbúðir. Þá hefur Bjarg gert viljayfirlýsingu um 75 íbúðir á Akureyri, 33 íbúðir á Akranesi, 44 íbúðir Árborg, 13 íbúðir Þorlákshöfn og 5 íbúðir í Sandgerði.

„Ljóst er að þörf er á átaki í íbúðamálum fyrir tekjulága einstaklinga/fjölskyldur og mikilvægt að sem flest bæjar- og sveitafélög taki þátt í þessu verkefni,“ segir í fréttatilkynningu. 

Áætlanir Bjargs um leiguverð gera ráð fyrir um 130-160 þúsund á mánuði fyrir 3ja herbergja íbúð. Lóðakostnaður og skipulagsskilmálar vega mest í mismun leiguupphæða. Opið er fyrir umsóknir um íbúðir á vef félagsins.

Bjarg er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að hagkvæmu, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða leiguheimili að danskri fyrirmynd sem standa munu til boða þeim félagsmönnum aðildarfélaga ASÍ og BSRB sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum, skilgreindum í lögum um almennar íbúðir, segir enn fremur á vef Bjargs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert