Fangar með 400 krónur á tímann

Fangelsið á Kvíabryggju.
Fangelsið á Kvíabryggju. Ljósmynd/Gunnar Kristjánsson

Alþýðusambandi Íslands hafa ítrekað borist ábendingar vegna vinnu fanga af Kvíabryggju á almennum vinnumarkaði. Þar má nefna vinnu við fjölbýli sem verið er að gera upp fyrir langtímaleigu, uppgerð sveitabýlis fyrir gistiþjónustu og vinnu hjá flutningafyrirtæki.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar kemur fram að ASÍ geri ekki athugasemdir við betrunarvinnu sem slíka, enda fari hún fram innan fangelsisins og í einhverjum tilfellum utan fangelsis.

„Í svari forstöðumanns fangelsins Kvíabryggju við fyrirspurn ASÍ er staðfest að fangar sinna störfum, m.a. iðnaðarmanna á almennum vinnumarkaði. Jafnframt kemur fram að útseld vinna þeirra er 800 kr. á tímann og að þeir fá[i] greiddar 400 kr. á tímann og ávinn[i] sér engin réttindi önnur. Hér er mikilvægt að árétta að betrunarvinnu við almenn störf á vinnumarkaði er hvorki ætlað vera í samkeppni við annað launafólk eða fela í sér félagsleg undirboð og réttindasviptingu fyrir þá sem störfin vinna,“ segir í tilkynningunni.

Bent er á að lögin og greinargerðin sem vísað er til geri ráð fyrir því að fangi geti unnið utan fangelsis og að hann fái skattskyld laun fyrir það. Engar heimildir séu til þess í lögum eða kjarasamningum að laun fyrir slíka vinnu skuli ákveðin með öðrum hætti en önnur laun, þ.e. lágmarkskjör samkvæmt kjarasamningum.

„ASÍ telur það fyrirkomulag sem gilt hefur um störf fanga utan fangelsisins á Kvíabryggju og vakin hefur verið athygli á klárt brot á lögum nr. 15/2016 um fullnustu refsinga og hvetur fangelsið og fangelsismálayfirvöld til þess að koma þessum málum í löglegt og rétt horf. Alþýðusambandið áskilur sér allan rétt til þess að fylgja þessum athugasemdum eftir gagnvart þeim yfirvöldum sem í hlut eiga.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert