Landsmenn stefna í 436 þúsund

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Ætla má að íbúar landsins verði 436 þúsund árið 2067 samkvæmt miðspá Hagstofunnar um þróun mannfjöldans. Til samanburðar var mannfjöldinn 348 þúsund 1. janúar 2018.

Þótt þjóðin sé að eldast og fólksfjölgun verði fremur hæg eru Íslendingar nú, og verða enn um sinn, mun yngri en flestar Evrópuþjóðir. Árið 2060 verður meira en þriðjungur Evrópubúa eldri en 65 ára en einungis um fjórðungur Íslendinga. Gert er ráð fyrir að Íslendingar nái núverandi hlutfalli innan ESB (19%) árið 2031.

Í nýrri spá Hagstofu Íslands er reiknað með að íbúar landsins geti mest orðið 513 þúsund talsins 2067 en 365 þúsund samkvæmt lágspánni.

Hagstofa Íslands hefur framreiknað mannfjöldann fyrir tímabilið 2018-2067 á grundvelli tölfræðilíkana fyrir búferlaflutninga, frjósemi og dánartíðni. Gerð eru þrjú afbrigði af framreikningnum; miðspá, háspá og lágspá. Spáafbrigðin byggja á mismunandi forsendum um hagvöxt til næstu fimm ára, frjósemishlutfall og búferlaflutninga. Einnig er gerð grein fyrir þróun mannfjöldans og samsetningu á tímabilinu.

Fleiri deyja en fæðast

Samkvæmt miðspánni verða dánir fleiri en fæddir á hverju ári frá og með árinu 2061 en frá og með árinu 2041 samkvæmt lágspánni. Hins vegar fæðast fleiri en deyja á hverju ári spátímabilsins samkvæmt háspánni.

Meðalævi karla og kvenna við fæðingu mun halda áfram að lengjast. Nýfæddar stúlkur árið 2018 geta vænst þess að verða 83,9 ára gamlar en nýfæddir drengir 79,8 ára. Stúlkur sem fæðast árið 2067 geta vænst þess að verða 88,7 ára en drengir 84,4 ára.

Fjöldi aðfluttra verður hærri en fjöldi brottfluttra ár hvert samkvæmt öllum spáafbrigðum, fyrst og fremst vegna erlendra innflytjenda. Íslenskir ríkisborgarar sem flytja frá landinu verða áfram fleiri en þeir sem flytja til landsins. 

Gangi miðspáin eftir verða eftirfarandi breytingar á aldurssamsetningu mannfjöldans:

  • Yfir 20% af heildarmannfjölda verða eldri en 65 ára árið 2039 og yfir 25% árið 2057.
  • Frá árinu 2046 verða þeir sem eru eldri en 65 ára í fyrsta sinni fjölmennari en þeir sem eru yngri en tvítugir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert