Spá allt að 40 m/s

Kort/Veðurstofa Íslands

Varað er við miklu hvassviðri í nótt og á morgun. Útlit er fyrir suðvestan 15-23 metra á sekúndu en vindhviður til fjalla, einkum á Vestfjörðum, Tröllaskaga og á Austfjörðum, geta náð allt að 40 m/s seint annað kvöld.

„Seint í kvöld gengur í hvassa suðaustanátt með talsverðri rigningu, fyrst syðst á landinu. Í fyrramálið snýst í suðvestanátt með skúrum en síðdegis á morgun er útlit fyrir suðvestan 15-23 m/s. Vindhviður til fjalla geta náð allt að 40 m/s seint annað kvöld, einkum á Vestfjörðum, Tröllaskaga og á Austfjörðum,“ segir í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. 

Í dag gengur á með skúradembum í allhvassri suðvestanátt en á austanverðu landinu hlýnar í hnjúkaþeynum. Næstu dagar verða vætusamir, einkum sunnan og vestan til en á morgun gæti vindur víða orðið til trafala, þar sem djúp lægð virðist ætla að ganga nokkuð nærri landi með talsverðu hvassviðri víða á landinu, einkum norðan og austan til og rigningu sunnan til á landinu. 

Á sunnudag dregur nokkuð úr veðurhamnum og ekki er mikilla breytinga að vænta  fyrri hluta næstu viku en á fimmtudag er útlit fyrir breytt veðurlag með norðanátt og kulda, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Suðvestan 8-15 m/s og skúrir en rofar til norðaustan og austanlands með morgninum. Heldur hægari um tíma í kvöld en vaxandi suðaustanátt með talsverðri rigningu nálægt miðnætti, fyrst við suðurströndina. Snýst í suðvestan 10-18 m/s með skúrum í fyrramálið en 15-23 m/s annað kvöld og sums staðar samfelldari úrkoma en yfirleitt þurrt NA-til. Hiti 2 til 8 stig.

Á laugardag:

Suðvestan 15-23 m/s með rigningu og síðan skúrum en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast á Austurlandi. 

Á sunnudag:
Vestlæg átt, 8-15 m/s og skúrir eða él, en léttskýjað austan til á landinu. Hiti 1 til 6 stig. 

Á mánudag:
Vestan 5-13. Rigning með köflum en þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti breytist lítið. 

Á þriðjudag:
Breytileg átt, 5-13 m/s en suðlæg átt síðdegis. Rigning, fyrst sunnan til en norðanlands um kvöldið. Hlýnandi veður, hiti 2 til 8 stig. 

Á miðvikudag:
Sunnan- og suðvestanátt og rigning en áfram þurrviðri austan til. Hiti 2 til 9 stig en kólnar hratt um kvöldið. 

Á fimmtudag:
Útlit fyrir norðanátt með kólnandi veðri og snjókomu víða um land. Hiti um og undir frostmarki en mildara við suðurströndina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert