Enginn var með fyrsta vinning í Lottó í kvöld og stefnir því í tvöfaldan pott í næstu viku. Tveir deildu hins vegar með sér öðrum vinningi og hljóta þeir 158 þúsund krónur hvor í sinn hlut. Annar miðinn var í áskrift en hinn var keyptur í verslun 10-11 á Laugaveginum.
Enginn var með fimm tölur í réttri röð í jókernum, en tveir voru með fjórar réttar tölur í réttri röð og hlutu þeir 100 þúsund krónur hvor í vinning. Annar miðinn var í áskrift, en hinn var keyptur hjá N1 í Lækjargötu í Hafnarfirði.
Tölur kvöldsins voru: 3 4 14 34 37
Bónustalan var: 40
Jókertölurnar voru: 0 9 6 5 7