Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir þremur stúlkum sem allar eru á 16. aldursári, en þær fóru frá heimilum sínum á Selfossi í gærkvöldi. Heita þær Ísabella Máney Grétarsdóttir, Andrea Ósk Waagfjörð og Hrafnhildur Malen Lýðsdóttir.
Þeir sem búa yfir upplýsingum um ferðir þeirra eða hvar þær halda til eru beðnir um að koma þeim upplýsingum til lögreglu í gegnum síma Neyðarlínu 112 eða með skilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar.