Stúlkurnar þrjár sem lögreglan lýsti eftir seint í gærkvöld eru komnar í leitinar. Lögreglan á Suðurlandi tilkynnti það á facebooksíðu sinni klukkan fimm í nótt að þær væru komnar fram.
Stúlkurnar eru allar á sextánda aldursári og höfðu farið frá heimilum sínum á Selfossi í gærkvöldi.