Framkvæmdum af hálfu borgarinnar lokið

Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar er öllum …
Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar er öllum framkvæmdum við braggann af hálfu borgarinnar lokið og hefur húsnæðið verið afhent Háskólanum í Reykjavík. mbl.is/Hari

Framkvæmdum við braggann í Nauthólsvík af hálfu Reykjavíkurborgar er lokið og hefur Háskólinn í Reykjavík tekið húsnæðið í notkun, að sögn Óla Jóns Hertervig, setts skrifstofustjóra skrifstofu eigna og atvinnuþróunar (SEA) hjá Reykjavíkurborg.

Frá því að kostnaður við uppbyggingu braggans varð fyrirferðarmikill í fjölmiðlum hefur öllum framkvæmdum á svæðinu verið hætt. Byggingarnar á svæðinu eru þrjár talsins; braggi, skemma og náðhús. Mat­sölustaður hef­ur opnað í bragg­an­um og skemman verður brátt tekin í notk­un sem félagsaðstaða og nýsköpunarsetur. Til stendur að fyrirlestrarsalur fyrir nemendur í Háskólanum í Reykjavík opni í náðhúsinu en því verki er langt frá því að vera lokið.

Upplýsti borgarstjóra um stöðu framkvæmdanna

Óli Jón segir að engar framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar séu lengur á svæðinu. „Reykjavíkurborg hefur fullnægt ákvæðum leigusamnings og HR tekið húsnæðið í notkun. Aðstaðan mun vonandi nýtast stúdentum og starfsfólki HR vel ókomin ár sem félagsaðstaða og nýsköpunarsetur,“ segir í svari Óla Jóns við fyrirspurn mbl.is.

Þá segir Óli Jón að frá því að hann tók við skrifstofustjóra SEA 15. júlí síðastliðinn hafi hann farið yfir framkvæmdirnar við braggann í Nauthólsvík með borgarstjóra. Forveri hans í starfi, Hrólfur Jónsson, sagði fyrir helgi að hann hafi aldrei nokk­urn tíma rætt við Dag B. Eggerts­son borg­ar­stjóra um upp­bygg­ing­una við bragg­ann í Naut­hóls­vík.

„Er á ábyrgð skrifstofu eigna og atvinnuþróunar“

Óli Jón segir í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is að skrifstofa eigna og atvinnuþróunar hefði átt að grípa fyrr inn í þegar ljóst var að framúrkeyrsla yrði á kostnaði við framkvæmdirnar. „Já, það hefði átt að gera borgarráði skýrari grein fyrir stöðu framkvæmda og kostnaði. Það er á ábyrgð skrifstofu eigna og atvinnuþróunar,“ segir í svari Óla Jóns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert